Monday, November 19, 2007

Hérna skeður það


Jú við erum löngu komin heim. Reyndi þvílíkt oft að setja inn færslur á gömlu síðuna en þar er bara allt í steik það svo að ég gafst upp og fékk mér nýja. Það var ofsa notalegt hjá okkur úti, getið séð myndir frá ferðinni inni á síðunni hans Benjamíns. Fórum í dýragarð sem var reyndar ekkert spes, ættlum sko næst í dýragarðinn í Óðinsvé hann er miklu flottari. Síðan vorum við bara að dingla okkur eitthvað fórum á ströndina nokkrum sinnum, vorum reyndar ekki oft í sundlauginni á hótelinu, löbbuðum okkur upp í hné, fórum í einn verslunarleiðangur. Þurftum að leggja óvenju mikið á okkur við verslinginn þarna, hellingur af búiðum en einhvernvegin ekkert sem okkur langaði í. Sigvaldi fór aftur til Færeyja á föstudaginn og ég og Benjamín vorum í bænum í dag. Hann og pabbi digluðu sér eitthvað saman á meðan ég og mamma vorum á námskeiði í sporsettningu. Núna kann ég semsagt að búa til logó og þess háttar sem hún getur síðan sauma í græjunni sinni. Ættla að taka ljósmynd af Títlunni minni og prófa að sauma út. Haha þá halda allir (nema þeir sem lesa þetta) að ég sé ógó myndó að sauma út. Sigvaldi kemur ekki aftur fyrr en 17 des, allar uppástungur um afþregingu sérstaklega um helgar vel þegnar þangað til.

5 comments:

Sigþór Árnason said...

Velkomin heim og til hamingju með nýju síðuna þína, ekkert smá pæjuleg :)ég er alveg að fara að hringja í þig, það er svo langt síðan ég heyrði í þér síðast (er bara farin að sakna þín). En ekki örvænta þó það verði ekki strax, það er svoooo brjálað að gera í skólanum og ég verð ekki búin í prófum fyrr en 20. des :(

btw. það er ekki hægt að kommenta nema vera með notendanafn og lykilorð

Sigþór Árnason said...

Sorry... þetta var ég (Ingunn) þurfti bara að fá notendanafnið hans sigþórs lánað ;)

Þóra Ósk said...

Takk fyrir það
Sakna þín líka og er oft að hugsa til þín
Búin að laga kommentin svo að nú geta allir sagt eitthvað sniðugt :)

Anonymous said...

sælar bara kvitta á nýju síðuna ;)
hír jú

Anonymous said...

hehe, bara að skella sér í dýragarðinn í Óðinsvéum.........Kv. Anna móða