Wednesday, November 21, 2007

Oh happy day. . . eða ekki bara



Var eitthvað skrítnari en venjulega þegar ég vaknaði í morgun, haldiði að ég sé ekki bara tekin við af Benjamín með veikindin. Reyndar laus við niðurgang 7 9 13 "bara" beinverkir og kvef. Skuttlaði honum til dagmömmunar áðan og ættlaði sko að vera nagli og mæta í vinnuna en komst að því þegar ég var komin þangað að það var ekkert vit í því að fara framúr í morgun. Svo hérna sit ég vafin inn í teppi með heit kakó og tisjú við höndina.

Það er bara einn fjölskyldumeðlimur ánægður með ástandið á liðinu þessa daganna en það er auðvitað Títlan mín, henni finnst æðislegt að þurfa ekkert að vera ein heima á daginn. En sjétturinn hvað það er kalt úti, 8° frost sagði mælirinn er alveg á því að það ætti að banna svona kulda það græðir enginn neitt þá þessu. Nema þá kannski 66°norður. Kemur sér vel að við keyptum 3 ullarpeysur á Benjamín úti og eina rúllukraga. Hann er svo mikil fatafrík krakkinn þó að hann sé ekki eldri en þetta. Daginn sem við keyptum peysurnar þegar við vorum komin aftur upp á hótel þá sá hann þær í pokanum og vildi endilega fá að fara í þykkustu peysuna. Jújú hann fékk það og þarna var krakkinn á bleyjunni og í ullarpeysu í 30 stiga hita og ekki að ræða það að taka hann úr þó hann væri löðrandi sveittur. Endaði með því að ég þurfti hálfpartinn að slást við hann til að ná honum úr. Líka alltaf ótrúlega fyndið þegar við fórum í eða löbbuðum framhjá skóbúðum þá vildi hann endilega fá að skoða en ef hann hefði fengið að ráða, máta alla skónna í búðinni.

2 comments:

Anonymous said...

Þið eruð nú meiri lasarusarnir, þið mæðginin!!
Vonandi farið þið nú að staulast á lappir svo við getum farið að fá okkur pizzu eða e-ð gott saman eitthvað hádegið!
Ég er bara orðin glorhungruð af því að bíða eftir þér!
En til hamingju með nýju síðuna og mundu að þú ert alltaf velkomin í heimsókn til mín (já, ég er líka alltaf á leiðinni til þín...:)

Anonymous said...

láttu þér batna! Mig dreymdi ótrúlega mikið í nótt að ég væri lasin og ég þurfti alveg að fullvissa mig í morgun að það væri í lagi með mig ;)