Ég og afkvæmið vorum heima í dag því hann var enn eina ferðina lasinn, hiti og uppáhaldið mitt niðurgangur. Alltaf yndislegt að skifta um bleyjur með úrgangssósu í. Hjördís skvís kítki í heimsókn til okkar áðan, alltaf gaman að sjá hana, drukkum pepsí og átum ostaköku sem ég náði að hrista fram úr erminni fyrr í dag þrátt fyrir veikindi afkvæmisins.
Rétt upp hendi sem fundu jarðskjálftana áðan. Þvílíkar drunur og hristingar það stendur inni á visir.is að fólk hafi hlaupið út á götu, við vorum nú meiri naglar en það mágkonurnar og héldum okkur innandyra enda skítkalt úti. Hef nú bara aldrei upplifað svona marga skjálfta á jafn stuttum tíma, þorði ekki öðru en að forða ýmsu niður á lægra plan, langar lítið að vakna við það í nótt að eitthvað sé að brotna.
2 comments:
Varðstu vör við eitthvað í nótt? Þetta var nú ekkert mjög skemmtilegt, þoli ekki svona hristinga. Takk fyrir kveldið í gær :)
Já ég fann alveg fullt eftir að ég sagði þér að allt væri hætt og vaknaði líka í nótt. Títla greyjið var alveg skíthrædd og fékk að sofa í köfunni sinni inni í herbergi hjá mér.
Takk sömuleiðis alltaf gaman að hitta þig skvís :)
Post a Comment