Fór með Benjamín til læknis í dag og þar kom í ljós að hann er með einhverja sýkingu í hálsinum greyjið og hefur líklega þessvegna eiginlega ekkert getað borðað. Hann hefur bara viljað drekka og þess vegna er hann líklega svona slæmur í maganum. Fékk lyf handa honum sem hann þarf að fá á átta tíma fresti í tíu daga. Mér hefði aldrei dottið í hug að honum væri illt í hálsinum litla kútnum því hann var ekki með neitt af þessum tíbísku einkennum, það kurraði ekki einu sinni í honum. Samt með fullt af móral því mér finnst ég hefði átt að vita þetta. Við semsagt eigum að taka því rólega í um tvo daga svona á meðan lyfin eru að kikka inn. Kannski við förum bara í sveitina á morgun, hann er alltaf hressari og kátari þegar hann fær að hitta afa sinn :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
ææ litli kúturinn vonandi að honum batni sem fyrst :)
æææ... skinnið..
Hafið það bara kósý, slakið á og reynið að jafna ykkur.
Verðum svo að fara að hittast! Þetta er bara ekki hægt! Að búa með ca kílómeters bil á milli okkar, en það er alveg hrikalegt að rölta sér yfir! Ekki hægt!
Nei guð það er bara ekki hægt
best að halda sig bara innadyra og ekki tala við annað fólk. . .
Post a Comment