Tuesday, December 18, 2007

Get ekki mikið meir

Það sem er ekki búið að ganga á á þessu heimili síðustu daga. Benjamín fór til læknis á mánudag, fimmtudag og laugardag, þá vorum við send með hann í bæinn á barnaspítalann og vorum þar langt fram á nótt. Erum síðan nýkomin heim frá lækni núna líka og vonandi í síðasta sinn í mjög langan tíma. En það er semsagt komið í ljós að hann er líklega með sprungna hljóðhimnu öðru meginn. Þriðji lyfjakúrinn á stuttum tíma, ættla samt að bíða þangað til á morgun allavega með að hefja hann því ef honum fer að líða betur í dag og nótt þá er engin ástæða til þess að byrla honum meira eitur. Já og svo kom Sigvaldi heim á laugardaginn, ekki búin að vera mikill tími til þess að "hitta" hann í öllum þessum veikindum. Kannski milli jóla og nýárs. . .

1 comment:

Anonymous said...

Úff.. ekki skemmtilegt ástand á ykkar heimili...
Vonandi fer þetta samt að lagast, litli kúturinn ætti nú ekki að þurfa að þola meira..
Það sem er lagt á þessi kríli!

Vonandi hafið þið það bara gott um jólin!