Notaleg jól liðin hjá okkur, komum ekki aftur heim fyrr en í gær enda lá sosum ekkert á. Þá var sett þvílíkt spítt í að gera húsið fínt því nú að nú liggur á að klára svo að við getum sett það á sölu því að við ættlum að flytja aftur á Helluna. Ótrúlegt vesen á manni alltaf, erum þá búin að flytja hálfan hring kringum landið og endum á nákvæmlega sama stað og við byrjuðum, grasið er ekkert grænna hinumeginn. Síðasti dagurinn í vinnunni hjá mér í dag því að ég og Benjamín ættlum að vera hjá ma og pa á meðan Sigvaldi er í Færeyjum, erum orðin alveg hundleið á að vera alltaf ein heima og þekkjum svo fáa hérna að það er ekki mikils að sakna. Erfiðast finnst mér að sjá á eftir draumaeldhúsinu mínu sem er orðið svo fínt og vel tækjað. Sosum ekkert slæmt sem ég fæ í staðinn og svo má alltaf breyta og bæta manninum mínum til mikillar hamingju. Held að ég smelli mér bara í bæjarferð á morgun og kíki á útsölurnar. . .
Langar líka að þakka kærlega fyrir alla fallegu gjafirinar sem ég og mínir fengu í jólapökkunum
2 comments:
Hó hó
Gleðilegt ár og innilegar þakkir enn og aftur fyrir lánið á bílnum - frábært að fá svona góða þjónustu á klakanum. Knús frá okkur öllum
KV. ALP
jæja gamla farðu nú að drífa þig í vinnuna!! er að mygla úr leiðindum hérna og bíð spennt eftir þér!! :)
Post a Comment