Wednesday, December 12, 2007

Myndaskapurinn ;)

Gerði tilraun um daginn sem heppnaðis svona líka ljómandi vel. Prófaði aftur fyrr í vikunni og það heppnaðis eiginlega enþá betur og þá var ég líka svo klár að skrifa niður hjá mér hvað ég gerði. Já ég er að tala um brauð, heillandi ekki satt. Þetta er bara svo fantagóð uppskrift hjá mér að ég get ekki legið á henni ein. Ég og Benjamín erum alveg vittlaust í þetta brauð og það besta er að það er alls ekki svo óhollt.

Ofgottbrauð
2 b hveiti
1 b heilhveiti
1 b haframjöl
2-3 msk sykur
2 msk graskersfræ
2 msk sólblómafræ
2 msk sesamfræ
4 tsk lyftiduft
1 tsk salt
2 b súrmjólk
1,5 b mjólk
Öllu blandað saman og bakað við 200° í 40 - 45 mín

1 comment:

Anonymous said...

ummm ég verð að prófa þetta við tækifæri! :)