Saturday, December 22, 2007

Nokkrar línur

Vorum að koma heim eftir langan dag í geðveikinni í Rvk. Verð nú samt að viðurkenna að þegar við vorum að heimsækja vini og kunningja í Hafnarfirðinum þá söknuðum við þess pínku vera þar. Eftir þennan dag á bara eftir að kaupa hálfa jólagjöf og pakka nokkrum gjöfum inn, omg hvað ég verð fegin þegar þessi jólageðveiki er liðin hjá. Það sem ég hlakka mest til er að elda og borða jólamatinn, mér hafa aldrei áður leiðst jólin svona hrikalega. Get ekki skrifað meir Sigvaldi lætur mig ekki í friði og er að sleikja á mér höfuðleðrið. . . ekki allir forleikir eins hjá þessari elsku. Hahaha

No comments: