Friday, January 11, 2008

http://roxannsrevamp.blogspot.com/

Búin með alveg 2 daga í nýju vinnunni minni og lýst bara mjög vel á :) Benjamín elskar leikskólann sinn eini gallinn er að hann er svo þreyttur þegar hann kemur heim á daginn að hann á ekkert eftir. En það lagast nú vonandi þegar hann hefur vanist þessu aðeins betur. Gekk ekkert smá vel að venja hann á að leggja sig í leikskólanum, hann fékk snudduna sína og hestinn sinn, lagðist undir sæng og bara fór að sofa. Ekkert vandamál þarna. En við erum semsagt komin heim til okkar á Selfoss núna og ættlum að vera hérna um helgina að snúllast. Húsið var sett á sölu í vikunni og núna er bara að krossa fingur og vona að það gangi vel að losna við það. Er reyndar frekar rólegur sölutími þessa daganna en maður bara vonar það besta. Fyrir þá sem langar að sjá þá er linkur hérna á sölusíðunna. Eins og sést á myndunum þá er eftir smotterí einsog að setja sökkulinn á eldhúsinnréttinguna og loftlista upp en við ættlum að vaða í það þegar Sigvaldi kemur næst í frí. Áhváðum líka að vera ekkert að taka meira uppúr kössum því það hreinlega tekur því ekki að koma sér betur fyrir fyrir svona stuttan tíma. Það er enþá svona "við erum nýflutt inn" bragur á þessu öllu saman, tómir veggir, talvan í stofunni og ekkert eða allavega mjög lítið um skrautmuni. Nenni ekki að skrifa meira núna, góða helgi góðir hálsar. . .

2 comments:

Anonymous said...

Mig langar rosalega að segja: vonandi gengur illa að selja og þið neyðist til að búa áfram á Selfossi, eeenn...
Gangi ykkur vel, þótt það sé dauður tími í sölu, þá er alltaf eitt og eitt sem er fljótt að seljast og selst vel!
Og gott að þú fílar nýju vinnuna og Benjamín fílar nýja leikskólann!

Anonymous said...

Þú og þínir eru líka það eina sem á eftir að sakna frá Selfossi Ásdís mín ;)