Saturday, January 19, 2008

Þetta helst



Setti inn ekki eitt heldur tvö ný albúm á síðunni hanns Benjamíns, var alveg komin tími á smá breytingu þar. Svo sýndi ég húsið aftur í gær og það gekk svona líka ljómandi vel, þau alveg kolféllu fyrir höllinni...hehe. Kemur annað fólk á morgun að skoða svo að þetta fer allt vel af stað hjá okkur.
Mamma mín var afmælisbarn gærdagsins og hún bara yngist með hverju árinu kerlan. Ég og pabbi stálumst úr vinnuni og fórum til hennar með köku. Hittum akkurat á hana í kaffitímanaum og komum henni alveg algjörlega á óvart. :)
En bestu fréttir vikunar eru samt þær að Benjamín eignast lítin frænda í júlí, eða sko hann heldur allavega að þetta verði lítill strákur. . . og hann ættlar að vera ofsa duglegur að passa hann og leika við hann.

3 comments:

Anonymous said...

Flott hvað gengur vel með húsa-skoðanirnar !

En ég er forvitin... hver er ólétt?

Anonymous said...

Gef það ekki upp alveg strax, er ekki viss hvort að foreldrarnir eru búnir að segja öllum frá :)

Anonymous said...

Ætli það sé ekki í stakasta lagi að segja hver er. þetta er búið að fara sem eldur í sinu milli landa og allt ;o)