Friday, February 15, 2008

Kom að því

Ég er sko búin að ættla að blogga alla vikuna og núna gengur þetta bara ekki lengur. Fínt í Færeyjum sjá fullt fullt af kindum, enþá meira af sjó en mest auðvitað af Sigvalda enda fannst mér lang skemtilegast að horfa á hann. Ættlaði að vera heima hjá mér um helgina (á Selfossi sko) en það breyttist snarlega í hádeginu þegar að Árni elsku besti frændi og Elín buðust til þess að passa fyrir mig svo að ég kæmist á þorrablót. Svo að núna ættla ég og stígvélin mín að skella okkur á ball. Mætti sko í þeim í vinnuna í morgun því að ég sá fram á að þau yrðu ekkert notuð um helgina, þetta reyndist bara ágjætis æfing því að ég er svo sjaldan orðið á hám hælum. Það er búið að vera soddan skíta veður að það er mjög takmarkað hvað það er hægt að vera mikil pæja. Verst samt hvað ég er ógeðslega kvefuð enþá læt það nú ekki stoppa mig, mæti bara með snítibréf í vasanum á tjúttið. Jæja látum það duga í bili, góða helgi og sjáumst á þorrablóti Játz

1 comment:

Anonymous said...

vívíví nýtt blogg :)