Sigvaldi sagði mér í morgun að það væri geðbilað veður í Færeyjum, fauk þak af fjárhúsi fyrir aftan hann þar sem hann var að vinna og karlinn sem er með honum hangir í þjöppunni þegar að mestu vindhviðurnar koma. Vona að það verði betra veður á morgun svo að fluginu verði ekki frestað annars væri það nú alveg týbbó svona í þetta eina skipið sem ég ættla að heimsækja hann. Svo er ég líka búin að næla mér í þetta líka herfilega kvef, finnst pínku einsog við eigum ekkert að sjást fyrren í næsta mánuði þegar hann kemur heim. Nú að góðu fréttunum, við seljum líklega húsið okkar í dag. Að vísu á aðeins minni pening en við höfðum hugsað okkur að fá fyrir það en á móti kemur að við þurfum ekki að taka baðherbergið í gegn eða gera neitt annað, bara afhenda það einsog það er. Erum eignlega hálffegin að þurfa ekki að standa í fleiri framkvæmdum gott að vera bara laus við þetta og geta farið að einbeita sér að því hvernig nýja húsið okkar á að líta út :) Rétt að vona að þetta verið síðustu fasteignaviðskiptin sem við stöndum í á næstu árum, nenni þessu veseni ekki aftur alveg í bráð. . . en svo veit maður aldrei hvaða flugu við fáum í hausinn næst. . .
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
gaman að heyra með húsið! til hamingju með það.
Vona að þu´komist til kallsins á morgun, heyri svo örugglega í þér í dag ;)
Allt finnur maður nú þegar maður gefur sér tíma að skoða netið.. EN þig Þóra elsku dúllan mín bjóst ég sko EKKI við að finna....
Luvluv
Stefí
Góða ferð til Færeyja krúttíbollan mín og til hamingju með húsabisnessinn! Knús frá Önnu móðu
Æ hvað ég vona að þú komist til kallsins, en mundu að ef fluginu verður frestað, þá er góð ástæða fyrir því. Ég trúi því alltaf!
Vonandi gengur allt upp með húsasöluna!
kv. Ásdís Ýr - Mjólkur Kýr...
Vá bara fullt af kommentum en gaman :)
Já maður rekst oft óvænt á það sem maður er ekki að leita að. . . ;)
Og langt síðan ég hef heyrt mjólkur kýr brandarann haha
Þetta er eiginlega ekki brandari núna... bara staðreynd.. ;)
Já það er víst alveg rétt, en þetta rifjaði samt upp gamla tíma þegar þetta átti ekki alveg svona vel við
Post a Comment