
Helv búðarbeygla á Hellu, það er ekki hægt að fara þarna inn nema verða fórnarlamb einhverskonar slæmrar þjónusu. Annað hvort er það ekki til eða útrunnið en ef svo ólíklega vill til að þú finnur það sem þig vantar þá er strikamerkið ekki inni í kassanum. Starfsfólkið hvorki lítur upp úr blöðunum né býður góðan daginn þegar maður ættlar að borga og þegar það er búið að renna herlegheitunum í gegn þá er bara starað á mann og beðið eftir að maður giski á hver upphæðin er. Já ég veit, það er heldur varla hægt að tala um vöruverðið þarna, Kannski hættu þau að segja hvað maður á að borga því það var alltaf að líða yfir fólk þegar það var beðið um aurinn. Og eitt enn, held að það sé regla að hrista fyrir manni gosið á kassanum, flöskunni er rennt í gegn og svo látinn detta hinum megin á kassanum það bregst ekki.
4 comments:
Já, éh fer nú reyndar mjög sjaldan í þessa blessuðu búð, en ég get samt verið sammála.
En það er samt allt í lagi að hrista gos ef flaskan hefur aldrei verið opnuð.
Klárlega þess virði að keyra sig í Bónus á Selfossi í staðinn fyrir að bregða fæti inn í þessa handónýtu búðarbeyglu...eins og landsbyggðafólk sé eitthvað annars flokks fólk sem á ekki skilið neitt betra.
Annars takk fyrir síðast;)
já það er ekki spurning um að bruna í Bónus einu sinni í viku þegar maður er fluttur.
Verðuru heima um helgina Ásdís ? var að spá í kíkja á laugardaginn.
Takk fyrir síðast sömuleiðis Tinna :)
heyr heyr!!!
Post a Comment