Í dag er ég búin að fara í gegnum 3 göng á tiltörlega stuttri leið frá flugvellinum til Þórshafnar, lærði að Færeyjar þýðir kindaeyjar, sá blómabúð sem heitir Dáinn, risa nautasteik sem kostaði 1500 íslkr og ýmislegt fleira sem kemur undarlega fyrir sjónir. Ég líka búin að hlæja mikið af öllum kjánalegu skiltunum hérna t.d. "börn splæsa" (varúð börn að leik skilti) og "víkja fyrir reiðum bílum" ekki alveg með á hreinu hvað var verið að meina þar. Ættla að taka fullt af myndum á morgun og hinn og hendi líklega einhverju hérna inn. Bið að heilsa í bili.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Gott að heyra aðeins frá þér. Sjáumst svo örugglega bara á morgun :)
Takk kærlega fyrir afnotin af húsinu um helgina, þetta var voða notó! :)
jæja gamla!!
ekkert blogg í heila viku!
Post a Comment