Sýndum húsið tvisvar í gær og það er aldrei að vita nema maður fái glóðvolgt tilboð í dag, vona það allavega. Önnur kerlan sem skoðaði var sko að kíkja í annað skiptið. . . hefði haldið að það lofaði góðu :) Páskar á næsta leiti og ég er sko búin að bíta það í mig að fá hvítt páskaegg. . . mmm hvítt súkkulaði. . . veit bara ekki alveg hvað maður fær svoleiði, veðja á Hagkaup. Hef sko ekki fengið mér míns eigins páskaegg í einhver ár og fyrst að ég ættla að fá mér núna það skal það sko vera gott.
En mæ ó mæ nú er allt að fara til fjandans fyrir íslenska Ebayinga, dollarinn er komin í rúmlega 73 kr. úff ekki alveg nógu gott ástand. Eins gott að ég ættla að nota páskana í að baka en ekki versla á netinu, stendur til að gera smá röndótta tilraun ógó spennandi að sjá hvernig það tekst til.

1 comment:
Nei nú er ég sko alveg hætt við að fá mér páskaegg. Gallabuxurnar höfð skroppið alltof mikið saman í morgun þegar ég fór í þær. . .
Post a Comment