Wednesday, March 12, 2008

Hversdagsleikinn

Eftir næstum heila viku ætti ég nú samkvæmt kenningunni að hafa eitthvað að segja en svoleiðis er það nú bara ekki í þetta skiptið. Dagarnir bara renna saman í eitt. Að vísu þá
  • - Komu Ingunn og Sigþór í mat til okkar um helgina sem var voða gaman
  • - Ég og mamma bjuggum til fullt fullt af kæfu í gær, þvílíur myndaskapur
  • - Benjamín uppgötvaði sultu í vikunni og fannst hún ekkert smá góð
  • - Sigvaldi kemur heim á hverju kvöldi sem er ansi góð tilbreyting
Svo að líklega þá hefur maður bara ekkert að kvarta yfir og ætti bara að vera ánægður með hversdagsleikann. . .

1 comment:

Anonymous said...

Já láttu mig þekkja þetta andleysi!