Thursday, March 6, 2008

Litli kúturinn minn



Jújú, koppaþjálfun í fullum gangi þessa dagann og minn gerði bæði númer eitt og tvö í koppinn í gær ekkert smá duglegur þessi elska. Það er ótrúlegt hvað barnið getur verið lengi bleyjulaust án þess að pissa á gólfið. Honum finnst það sko algjör höfuðsynd því hann sá einn strák í leikskólanum gera það og er alveg hreint yfir sig hneygslaður á þessum sóðaskap. Hann bendir á gólfir og segir mjög þungur á brún (Sigmundur Ernir svipurinn) USSS neinei !!

2 comments:

Anonymous said...

Voðalega er kúturinn duglegur, ég sé alveg fyrir mér hneykslissvipinn!! Dagur frændi hans þurfti nú alltaf að ganga einn rúnt með koppinn og sýna öðrum fjölskyldumeðlimum afurðirnar til að fá hrós. Það fór nú ekki vel einn daginn því Pési kom askvaðandi og gleypti drjólann í einum munnbita. Þá var minn nú hneykslaður - og sár. Passaðu að Títla leiki ekki sama leikinn hehe.Knús frá móðursystur

Anonymous said...

Haha, Títla er sko alltaf frammi í skúr amma og afi vilja ekki sjá það að hún sé inni. Vantar örlítið uppá hundaástina hjá þeim.

Kossar og knús á alla