Friday, April 18, 2008

Þá er þessi erfiði og langi dagur að líða undir lok. Við vorum í jarðarförinni hans Sigurjóns í dag, ofsalega falleg athöfn og mikið af fólki. Vorum að skjóta á að um 500 manns hafi mætt. Það er alltaf svo erfitt þegar svona ungt fólk deyr, mig er búið að kvíða fyrir að fara í þessa jarðarför í marga daga.
Eitt sem ég skil ekki alveg, en það er fiðlur í jarðarförum. Jújú þetta er ofsalega fallegt og viðeigandi en það fara allir að gráta þegar sorgleg lög eru spiluð við sorgleg tækifæri á fiðlu. Einsog þetta sé ekki nógu erfitt heldur er verið að kvelja mann með fiðluspili líka, viss um að það féllu tár lítravís þegar það var spilað söknuður (eftir Vilhjálm) á fiðlu og orgel fyrir athöfnina. Allavega þá ættla ég að láta það flakka hérna að það verður ekki spilað á fiðlu í minni útför.

4 comments:

Anonymous said...

Ég er viss um að þetta er gert svo fólk gráti. Sumir reyna að byrgja grátinn inní sér sem er mjög óhollt, en það er erfitt að byrgja hann inni þegar er spilað á fiðlu.
Ég ætla samt að gráta í þinni jarðaför þótt það verði engin fiðla á svæðinu (ef ég dey ekki bara langt á undan þér)

Anonymous said...

Já það er sniðugt að líta á þetta svona. . .
Og gott að vita að það grætur einhver í minni jarðaför þó að það verði ekki fiðla, ég geri það líka í þinni ef þú verður á undan

Anonymous said...

Málið var nú bara Þóra mín að þeim fannst þetta fallegt að hafa fiðlu. Eins og Magga sagði sjálf þá var hann 21 árs og allt við þetta er sorglegt,það er allt í lagi að öll kirkjan gráti..Mér fannst þetta allt ofsalega fallegt...Kveðja Kristín

Anonymous said...

Mér fannst þetta ofsalega falleg útför líka, ég var að tala meira svona almennt þegar ég skrifaði um fiðluna. Það grétu líka allir í kirkjunni allan tíman enda ekki annað hægt þegar svona hræðilegt dauðsfall veður.