Ég og Benjamín fórum út að leika í rigningunni í morgun og vorum alveg heillengi að moka á gröfunni, fórum í fótbolta, langan göngutúr í þúfunum (sem er mikið sport) og svo dró ég hann á traktórnum lengst út í buskan og til baka aftur. Eftir það kúrðum við soldið saman og fórum svo til Siggu ömmu og Emma afa. Benjamín var í góðu yfirlæti hjá afa sínum á meðan ég fór og skreytti salinn fyrir fermingun hjá honum Ragga mági mínum. Mmm hvað ég hlakka til að borða flottu kökurnar í flotta salnum. . .
Núna erum við komin heim, Benjamín er að horfa á Brúðubílinn og ég að sötra rauðvín. Sigvaldi ættlar að koma heim með pizzu því ég bara hreinlega nenni ekki að elda í kvöld.
---
Keypti svona límmiðasett til að setja í herbergið hans Benjmín þegar við erum flutt. Hlakka ofsa mikið til að gera herbergið hans fínt.
Ættlum líka að veggfóðra einn vegg í stofunni og ég er að missa mig í að skoða á netinu og velja, endar líklega með því að það verður einn veggur í hverju herbergi veggfóðraður.
---
Og svo er ég líka að fara að gera soldið spennandi á morgun, get varla beðið. . .
Hlakka ógó mikið til að kom í heimsókn til þín skvís. . .

3 comments:
Hmmm... hvað ætli þú sért að fara að gera..????? :)
kvitt:) kv.vigdís
hmmm maður spyr sig :)
Kv, Eydís
Post a Comment