Fórum með Benjamín í kirtlatöku á miðvikudaginn og hann stóð sig auðvitað einsog hetja. Soldið kvektur þegar hann vaknaði af svæfingunni en hann sofnaði aftur í bílnum á leiðinni heim og var einsog nýr eftir það. Mig var búið að kvíða mest fyrir þvi að láta hann svelta fyrir aðgerðina en það var nú ekki málið, hann borðaði vel í morgunmat (pizza á boðstólnum til að tryggja að hann borðaði vel) og svo fékk hann eplasafa í hádeginu þegar hann var farinn að tala um að hann væri svangur. Ekki alveg það sama að segja um mömmu hans, ég semsagt var orðin svo svöng í hádeginu að feðgarnir fóru bílasölurúnt á meðan ég stökk inn í Olís og fékk mér puslu, svo var hægt að bruna í bæinn.
Ættlum að vera ógó dugleg um helgina að flytja jafnvel klára og þrífa svo bara um næstu helgi. Kerlingin sem er að kaupa af okkur kom á miðvikudagskvöldið og bankaði uppá langaði að sýna stráknum sínum húsið því hann var að deyja úr spenningi, allt í læ með það. Nema hvað síðan fór hún að segja okkur frá því hvað það væri orðið erfitt að búa með karlinum sínu (þau eru sko að skilja) og að hún þyrfti að fara að fá húsið. Sagðist vera búin að hringja í fasteignasalann og biðja hann að reka á eftir okkur með að afhenda. Djöfuls frekja í kerlingunni finnst mér nú bara að vera að demba þessu á okkur. Finnst það bara ekki koma mér rassgat við hvernig heimilisaðstæður eru hjá henni og hvernig börnunum hennar lyndir við pabba sinn. Í fyrsta lagi þá hefði hún geta verið löngu búin að fá húsið því að hún var ein af þeim fyrstu sem komu að skoða hjá okkur og í öðru lagi þá er hún að fá húsið með mánaðarfyrirvara sem verður nú bara að teljast mjög gott. Já ég er bara doldið pirruð yfir þessari heimsókn
9 comments:
Gott að allt gekk vel með snáðann ykkar. Vona að hann verði bara hressþ
En varðandi kerlinguna þá er etta örugglega akkúrat ástæðan fyrir því að kallinn er að henda henni út :) hehe
Kv, Eydís
Vá loksins tókst mér að fatta hvernig ætti að kommenta hérna, ekki alveg mesta tölvugúrúið sko.
Kv, Eydís
haha já það er öruggleg alveg rétt hjá þér
og já þú er rosa klár tölvukerla haha
Æi litli kiðlingurinn hann er svo duglegur...En vá vargagangurinn í þessari kellingu,það er ekki ykkar hausverkur að þau geti ekki búið saman...hún verður bara að bíða eins og aðrir með að fá afhent,eins og maður geti bara sagt svona við þá sem maður er að kaupa hús af,frekar barnalegt myndi ég segja,en nóg nöldur í billi. Kysstu kúttinn frá UPPÁHALSFRÆNKU :)
Þetta blogg er sennilega eitt það lengsta sem ég hef lesið hjá þér ;) sumir ættu að taka þig til fyrirmyndar... hmmm
haha já segðu ;)
Kúturinn fékk stórt frá frænku sinni og var hæðst ánægður með :)
Ohh, það er alltaf svo erfit að láta börnin sín svelta (eða fasta).
Gangi ykkur vel í flutningum, myndi bjóða fram hjálparhendur, en ég kemst ekki einusinni yfir að taka til hjá sjálfri mér því ég á svo athyglisjúkt barn...
Hvernig væri svo að fara að hittast kannski einhverntíman... hmm..
Líst sko vel á hitting var einmitt að stefna á að kíkja við um helgina ef að það gengur vel (hratt) að klára að flytja og þrífa
Jibbí!
Bíð spennt eftir heimsókn!
Post a Comment