Jújú við erum enn á lífi og við hestaheilsu, Benjamín er hæðst ánægður með nýja húsið og ekki skemir að beint á móti eru afi og amma og Helga og Raggi sem er ekkert smá gaman að fá í heimsókn því að þau nenna endalaust að leika við hann. Sigvaldi sést ekki mikið heima þessa daganna því að það er brjálað að gera hjá honum við að græja Gaddstaðaflatir fyrir mótið mikla. Og svo er ég bara í því að koma okkur almennilega fyrir, þarf að vísu rosalega að skjótast í bæinn og fjárfesta í öðrum sófa og fleiru sem að vantar en þetta er allt í áttina samt.
Ég og Benjó fórum í leikskólan hérna í morgun, aðlögunin er byrjuð hjá honum og það gekk svona líka ljómandi vel. Átti nú reyndar ekkert von á öðru, enda frekað meðfærilegt barn hérna á ferð. Verður gott þegar allt er orðið einsog það á að vera, allir mæta í vinnu og leikskóla á morgnana og hver hlutur á orðið sinn stað hérna heima. . .
2 comments:
Jæja gott að þetta er allt að verða komið hjá ykkur :) Ætli ég fari nokkuð allveg strax frá Hellu,það er samt ekkert svaka margt sem heldur í mann hér,fyrir utan fjölskylduna auðvitað...Ef það kemur en ein hækkun þá fer ég!
Kveðja Kriss
Já við höldum fast !!
Skil þig samt alveg, þessar hækkanir eru ekkert eðlilegar
Post a Comment