Tuesday, February 26, 2008

heppinn

Vá ekkert smá skrítinn dagur. Var að laga til í morgun (var heima því að Benjamín er lasinn) og þá fann ég símann minn sem er búin að vera týndur í rúmlega hálfan mánuð hann var reyndar alveg jafn bilaður og þegar ég týndi honum en samt. Svo var ég heima á Selfossi áðan og var á einhverju röllti um húsið að bíða eftir fólki sem var að koma að skoða. Þá ákvað ég fyrir einhverja rælni að kíkja í lítinn kassa sem ég geymi augnskugga og fleira girlystuff í og viti menn, fann ég ekki bara gulleyrnalokkana sem Sigvaldi gaf mér áður en við fluttum á Egilstaði og eru búnir að vera týndir síðan, um 5 ár eða svo.
En allavega þá komu 2 að skoða og leist ljómandi vel á vonum bara það besta með krossaðar tær og fingur.

4 comments:

Anonymous said...

hahah þetta er spes :)
það hefur greinilega einhver fengið þetta bara á láni!

Þóra Ósk said...

Já það lítur út fyrir það, heldur betur verið gella þessi álfkona með bleikan síma og gulleyrnalokka
:)

Anonymous said...

Já,auðvitað eru álfkonur algjörar gellur!
Þú ættir kannski að koma í heimsókn til mín og leita að nokkrum hlutum fyrir mig...

Anonymous said...

haha já það er bara aldrei að vita nema ég láti sjá mig um helgina í leitargallanum ;)