Saturday, April 12, 2008

Erum á Selfossi að vinna í baðherberginu, datt í hug áðan að hringja í Gunnar í Krossunum og segja honum að ef hann kæmi og kláraði baðherbergið fyir okkur þá mætti hann reyna að snúa okkur á meðan. Hahaha Sigvalda fannst þetta ekki alveg jafn góð hugmynd og mér, hann sá fyrir sér flokk af kristilegum smiðum að græja herberið á meðan Gunnar predikaði yfir okkur. Og það versta er að hann hélt honum tækist að snúa okkur. Ég er ekki alveg jafn viss en veit samt að karlinn er ótrúlegur þegar hann ættlar sér að næla í fólk í söfnuðinn.

3 comments:

Anonymous said...

Heyrðu, þessir tveir sem labba um í jakkafötum og banka uppá hjá fólki á Selfossi, þeir eru sko til í að hjálpa til við svona!!
Þeir fóru til vinkonu minnar og buðust til að hjálpa við að parketleggja og þeir gerðu það! Settust náttúrlega aðeins niður og ræddu einhver mál fyrst, en þeir parketlögðu líka!

Anonymous said...

Hahaha ertu ekki að grínast
Ja hérna, þeir eru sko ekki búnir að láta sjá sig heima hjá mér
Hef samt séð þá á rölltinu

Þóra

Anonymous said...

Vá ef þið hittið þá megið þið benda þeim á að skreppa á Hvolsvöll, þar má alveg taka til hendinni;)