Thursday, July 10, 2008

heitasta helv. . .

Vááá hvað það var gott veður í dag. Ég var að kafna í vinnunni með viftuna á fullu, einn karl sem ég var að tala við í símann spurði hvort ég væri úti því það var svo mikið rok hljóð í símanum. . . Og til þess að láta manni líða enþá betur yfir því að vera inni í góða veðrinu þá sá ég í hádeginu á leiðinni heim að það var búið að blása upp sundlaug í næsta garði og hálfberrassaðir krakkar úti að sulla. Hefði sko alveg verið til í svoleiðis dag með Benjamín og Ísabellu, eigum sko svona sundlaug sem bíður enn í kassanum sínum síðan síðasta haust (keypt á útsölu) en svo að það fari nú ekki á milli mála þá hefði ég sjálf aldeilis ekki verið hálf berrössuð heldur sómasamlega til fara einsog aldraðri húsmóður hæfir.

Afmælisbarn dagsins er Palli litli brósi. Til hamingju með það og drekktu nú ekki allann konnann í einu. . .
P.S. í sambandi við myndina þá finnst mér svona Snoopy sokkar ekki fara alveg nógu vel við þennan kjól.


3 comments:

Anonymous said...

Já, ég er ekkert smá hneiksluð á konunni á myndinni, var hún ekkert að hugsa þegar hún var að klæða sig í morgunn?? Þetta er bara alls ekki að passa saman hjá henni, hefði átt að fara í hvíta sokka!

Anonymous said...

Þóra, sóðalöpp:) hehehe kv.vigdís Hlakka til að hitta þig næst í daquiri. Við verðum kannski búnar að kaupa spræt og blandarinn við hendina. Þó var hitt líka bara alveg helvíti gott....

Anonymous said...

haha já þetta er nú ekki í lagi sko

og já ég ættla sko að vera búin að kaupa mér blandara og spræt næst :)