Saturday, January 31, 2009

Jæja komin heim úr sumarbústað endurnærð en batterín þó alveg tóm hjá Benjamín, alltaf pínu erfitt að hafa svona gaman. Sigvaldi fer aftur í vinnuna annað kvöld eftir vikufrí, bara kósý hjá okkur að hafa hann svona lengi hjá okkur í einu. Við erum búin að skreppa í bæinn saman þar sem Benjó fékk þennan líka flotta mótorcrosshjálm til þess að nota á hjólinu sínu og þvílík hamingja, feðgarnir fóru í sund, skruppum í Þykkvabæinn með fjórhjól og kíkjum í heimsókn í leiðinni, eignuðumst lítinn frænda, skruppum eina nótt í sumarbústað til ma og pa og margt fleira skemtilegt.

2 comments:

Anonymous said...

gaman hjá ykkur :)
unnsa

Anonymous said...

Djöfull er ég góð.. Dreyma þig ólétta áður en þú sagðir mér það og líka að það væri strákur:) og já BTW.draumurinn kostaði 5000 kall.. þú leggur bara inn á mig gamla;) hehe
Hlakka til að sjá ykkur um aðra helgi
Kv.frænks