Vá hvað ég er ekki að nenna þessum jólum núna. Er ekki komin í neitt jólaskap og ekkert farin að skreyta held meira að segja að ég ættli ekkert að gera það. Við ættlum að vera hjá mömmu og pabba um jólin og Benjamín er ekkert farin að fatta þetta svo að ég sé enga sérstaka ástæðu fyrir því af hverju ég ætti að vera að grafa upp jóladótið. Bakaði reyndar smákökur áðan en það var nú ekkert jólalegt við það, langaði bara að eiga eitthvað handa gestum. Kannski dett ég í gírinn á næstu dögum, Sigvaldi er nú örugglega ekki alveg sammála mér að það sé allt í læ að skreyta ekkert. Finnst allt þetta jólaáreiti ganga svo mikið út í öfgar, hvernig líður eiginlega fólkinu sem heldur ekki jól og hvernig útskýrirð það fyrir börnunum sínum að þau fái ekkert dagatal, engin falleg ljós í húsið sitt og enga pakka þegar öll hin börnin í skólanum eru alveg uppveðruð af því. Þessa dagana tek ég það allavega alveg að mér að vera Grinchinn á Selfossi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

4 comments:
Æ.. ég vorkenni þér bara að vera ekki komin í jólaskap!
Komdu bara í heimsókn til mín um helgina, ég skal lofa að þú kemst í jólaskap! :)
Já ég er alveg til í að láta reyna á það hvað segirðu um að við kíkjum til þín eftir vinnu á morgun
Hvenar er Aron búin í leikskólanum?
Aron er búinn kl 4, en þá er ég að fara að skutla honum í sveitina því við skötuhjúin erum að fara á Fjöruborðið að borða humar mmm...
En verðuru ekki á Selfossi um helgina? verðuru kannski alveg á Hellunni?
Er ekki en þá alveg búin að áhveða hvað ég geri, er allavega að fara í bæinn á morgun
Góða skemtun í kvöld :)
Post a Comment