Afrek gærdagsins var að skrifa upp í tölvuna næstum allar upp- skriftirnar mínar og það er nú alveg þokkalegur slatti. Svo að núna á ég bráðum ógó flotta uppskriftabók og verð þá kannski enþá duglegri að baka.
Svo hringdi Sigvaldi í mig í gærkvöldi og sagði mér að hann væri búin að panta flug fyrir mig út til sín eina helgi í feb. Erum líklega að fara á þorrablót þar. Haha hvernig haldiði að það sé að fara á þorrablót í Færeyjum ? Vona bara að ég eigi ekki eftir að verða mér til skammar með því að hlægja mikið af því hvernig Færeyingar tala.

2 comments:
Guð hvað ég væri til í að koma með þér til að heyra færeysku!! Alveg örugglega fyndnasta tungumál sem til er!
Já ég er alveg viss um að ég á eftir að glotta smá ef einhver reynir að tala við mig :)
Post a Comment