Friday, January 4, 2008

. . .

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gamalt og gott Stórt smúts á alla
Fyrsta bloggið á nýju ári, það byrjar allt vel hjá okkur. Benjamín er ánægður í nýja leikskólanum sínum og það gengur vel með húsið mikið búið að gerast síðustu daga. Það er að allt að verða svo fínt að það er alltaf erfiðara og erfiðara að sjá á eftir þessu öllu saman. En maður getur víst ekki bæði sleppt og haldið. Ég byrja í Sammaranum í næstu viku, verð að vinna með Dísunni minni hún er búin að lofa að passa mig fyrstu daganna :) Sigvaldi fer til Færeyja á mánudaginn og verður til 28. held ég. Á eftir að koma í ljós hvort að þetta verður síðasta úthaldið þar eða hvort ég held áfram að vera grasekkja. Get nú ekki sagt að ég sé orðin góð í því maður venst því ekkert að vera alltaf einn, þakka bara guði fyrir Skype. . .
Reyni að herða mig aðeins í blogginu það er bara mikið að gera þessa daganna.

No comments: