Tuesday, January 22, 2008

Fullt tungl í kvöld

Sýndi húsið eina ferðina enn í gær, það er auðvitað alveg frábært hvað fólk virðist hafa mikin áhuga á því en ég er bara svo leið á að skjótast á Selfoss til þess að sýna. Það fer meirihlutin af kvöldinu í það sem þýðir að Benjamín er steinsofandi þegar ég kem heim og ég hitti hann ekkert þann daginn sem er alveg ömurlegt. Á leiðinni á Selfoss í gær hringdi síminn og vildi einn alveg endilega skoða Subaróinn sem er búin að vera endlaust lengi til sölu og ég bara sjétturinn gerir maðurinn sér ekki grein fyrir því hvað hann er að biðja um ?? Bíllinn var svo á bólakafi í snjóskafli að fólk sem kom að skoða um helgina spurði hvort það væri bíll í innkeyrsluni eða bara skafl... En allavega þá gat ég mokað frá bílnum svo að maðurinn gat sest inn í hann. Honum leyst svona líka vel á að það kom tilboð í dag svo að ég og pabbi brunuðum á Selfoss eftir vinnu til þess að moka bílinn upp og henda honum upp á sölu. Jæja allavega gott að vera laus við hann. Sagði manninum reyndar að hann fengi fínt pakkatilboð ef hann keypti húsið líka en hann var víst nýbúinnað byggja svo það varð eitthvað lítið úr því.
Langar að benda öllum á að skifa undir hérna, ef það næst að safna miljón undirskrifum veður Evrópusambandið að taka til umræðu forvarnir gegn leghálskrabbameini, það búa ekki allir svo vel að hafa svona góða leitarstöð eins og við hérna á þessari eyju. Bara velja íslenska fánann og skrifa nafnið sitt ekkert flóknara en það, jú kannski benda öllum sem ykkur dettur í hug að skrifa undir líka. Einsog sést á tölunum hafa Íslendingar staðið sig frábærlega en það má lengi gera betur :)

2 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með að vera búin að selja bílinn!! Verst að gaurinn hafi ekki viljað taka húsið í leiðinni..

Anonymous said...

Takk fyrir það, hlýtur að koma að því að húsið seljist líka :)