Tuesday, January 15, 2008

Ragnarrök

Djísús hvað það er búið að snjóa, hvarflaði alveg að mér í dag að ég kæmist ekkert á Selfoss að sýna húsið mitt. Já það eru sko 2 að koma að skoða á eftir. Ég hafði það að berjast í gegnum skaflana og alla leið í götuna mína þar pikk festi Vollinn minn sig og situr en. Innkeyrslan er þakin snjó og ég óð vel upp fyrir hné til að komast inn (minni ykkur á að það er ekki beint stutt í hnéð á mér lesendur góðir) Mundi það þegar ég labbaði inn að það er engin skófla í húsinu til þess að ryðja braut fyrir væntanlega kaupendur svo að mín tók sig til með fægiskóflu í hönd og mokaði stíg í gegnum alla innkeyrsluna og út á götu. Já það borgar sig sko að vera í Jumpfit hjá Eydísi harðstjóra því ég hreinlega blés ekki úr nös (nei ég er ekki með stíflað nef) á meðan á þessu stóð hehe.

2 comments:

Anonymous said...

úff geturu ímyndað hvernig við verðum þegar við verðum búnar með námskeiðið ;) Þá verðum við sko massar!

Anonymous said...

Þú ert nú meira hörkutólið Þóra mín...
Ég sit bara inni og horfi á snjóinn og í mestalagi nenni ég að teygja mig út um dyrnar og í póstkassann svo ég geti sest niður og skoðað blöðin.. ;)